This is where I hide!
18.07.2007 11:35:29 / Alvia

á ég að færa mig á annann vef?

er að pæla hvort ég egi að færa mig yfir á www.123.is eins og J systir!

 hvað finnst ykkur?

 

nenni ekkert að blogga núna en það kemur fljótlega 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 12:22:23 / Alvia

Sumarblíða

Afskaplega fallegt veður ídag, heiðskírt og bjart. Reyndar búið að vera voða fínst þessa síðustu daga. gæti alveg sætt mig við svona veður allan árssins hring.

Annars er nóg búið að vera að gera, fór á árshátíðina hjá hugarafli og skemti mér ljómandi vel. Maturinn var mjög góður en afar takmarkaður, eftir forrétt, aðalrétt og eftrirétt þá vorum við ennþá svöng sum og vorum nokkur að pæla í því að skreppa yfir á hlölla og fá okkur eftir eftirrétt.

Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með concerta, virkaði ekki neitt eins og ég hafði vonað að það myndi gera, svo það var engin "aha" upplifun út frá því. Er samt sem áður að gefa þessu séns og vona það að nýju töflurnar sem eru sterkari virki. annars er ég varla viss um að ég nenni að standa í þessu.


Annars er ég búin að hafa smá að gera upp á síðkastið. Er flutt í herbergi í einbýli í fossvoginum en það eru 6 herbergi í húsinu sem eru leigð út og svo er restin sameginleg. rúmgott og fallegt hús (þótt gamalt sé og þörf á viðhaldi). Enn sem komið er líkar mér þetta bara vel og vona að það haldi áfram á þeim nótunum. Vona bara að ég nái að taka hingað allt saumadótið mitt.

Það er yfirleitt nóg að gera hjá mér. Er að vinna sem sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum í HFJ bæði í búðinni og svo í fataflokkuninni sem er voða fínt. Hef verslað mér fín föt þar á góðu verði sem er bara ágætt þarsem ég hef takmarkaðan pening og tími lítið að kaupa mér ný föt á meðan ég er þetta þétt. Var reyndar gífurlega heppin um daginn en ég fékk nokkrar buxur um daginn frá Lilju vinkonu og svo Á litlu systur hennar sem að pössuðu mér vel í því ástandi sem ég er í núna.
Átakið mitt gengur annars voða hægt og veit ég varla hvernig ég á að snúa mér í þvi akkurat núna, held það verði bara á ís þartil það er komin aðeins betri regla á líf mitt og flutningarnir og frágangur búinn m.m. Ég reyni samt sem áður að passa mig á því sem ég borða, vel oftast magari kostin og svo takmarkað af salgæti. Ætlaði um daginn að fara í kúr en varð að fresta því þarsem ég varð nánast veik, hreinlega höndla það ekki að bara allt í einu hætta með nammi og aðra óhollustu.


Eins og þið sjáið er allt orðið ljósara en það var og er ég óvenju bjartsýn á framtíðina eða réttara sagt bjartsýnari en ég hef verið lengi. Er að fara í iðnskólann í haust. Er einnig að vinna í því að losa mig við suma hluti úr lífi mínu og komast yfir aðra svo þetta fer kanski allt að gerast.

og svo er elsku besta systir mín að stinga mig af og mun ég sakna hennar alveg gífurlega mikið.

 

jæja ég er farin að þykjast gera eitthvað viturlegt... og fá mér hádegismat! Hafið það sem allra best kæru gestir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 12:46:24 / Alvia

ný lyf og pilluáminning!

Jæja nóg að gerast hérna an ekki margt sérstakt! Reyndar er ég að fara á árshátíð á morgun Laugardag á vegum Hugarafls! verður voða fínt! verður lambakjöt og ís í eftirrétt, ekki gott fyrir átakið mitt en já ég ætla samt að leifa mér þetta!

Annars tók ég fyrstu concerta töfluna mína núna í morgun, ég er með svo miklar vonir til þessa lyfs, vona innilega að ég fái svona "aha" upplifun eins og margir og það að ég egi léttara með að ráða við hlutina í kringum mig! Þetta lyf hefur verið bjargvættur fyrir marga og geri ég mér miklar vonir um að þetta verði kraftaverkalyf fyrir mig líka! =)

En talandi um lyf þá hafði ég einhverntíman heirt talað um pilluáminningu sem sms frá vefsíðu á netinu! Hafði oft heirt um þetta en lítið pælt í þessu, en fór svo að hugsa að þetta væri gott að hafa og prufa! Svo ég spurði Górý mína um það hvort að hún kannaðist við hana, þessi elska reddaði mér svo adressunni þangað og ég skráði mig!

 Endilega kíkjið á þessa síðu ef þið egið í vandræðum með að muna eftir pillunni eða öðrum lyfjum: www.p.molar.is

þannig að akkurat núna þá er ég gífurlega jákvæð og full vonum um framtíðina! Sumarið lítur vel út líka, tjaldferðalag og sumarbústaðarferð ákveðið og það verður lámark ein tjaldferð til viðbótar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 23:55:49 / Alvia

lélegur bloggari!

vá hvað ég er léleg í þessu! er búin að hafa svo mikið að gera og hreinlega ekki haft orku í þetta!

annars er ég bara að reyna að vinna í mínu og vona að hlutirnir réttist við!

 er of þreytt til að blogga mikið núna en ætla bara að lata vita að ég sé á lífi!

 læt heira í mér síðar!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 16:17:39 / Alvia

frekar tómt!

Jæja, það er víst svolítið íðan að ég skrifaði hérna!  Búið að vera nóg að gera upp á síðkastið!

Akkurat núna sit ég bara og er frekar orkulaus! og smá íllt í bakinu! Bara ef þið skilduð ekki vita það þá ætla ég að fræða ykkur um það að það er vont að vera tognuð í bakinu!

 

 en gleðilegt sumar! reyni að láta heira í mér umhelgina!


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 10:44:41 / Alvia

--- bara lala eða svo ---

   Ekkert sértstakt búið að vera að gerast hérna megin upp á síðkastið! Bara mest verið heima í aðgerðarleysi með Kela mínum! Reyndar er ég búin að afreka það að þvo svolítið að þvotti þessa síðustu daga sem er náttla bara frábært þarsem að mig var sárlega farið að skorta hreinar flíkur!

   Er reyndar alveg búin að vera að farast úr vöðvabólgu og þarf ég eginlega að reyna að draga sjálfa mig í sund og reyna að losa mig við þetta! Get nefnilega ekki farið í ræktina fyrr en þetta er búin að skána þarsem það er svo helvíti vont!

   Svona það jákvæða með síðustu daga er að ég er búin að vera frekar dugleg að skrappa! (scrapbooking fyirr ykkur sem ekki kannist við þetta) Þetta er algjör þerapía þósvo að stundum sé þetta erfitt! Ég er í hóp sem fær ákveðin verkefni fyrir hvern mánuð fyrir sig og verkefnin fyrir þennan mánuð eru "eftirsjá" & "5 skemtilegar æskuminningar"! eftirsjáin er frekar einföld og það er það að ég skyldi ekki hafa haldið áfram námi! en það að finna 5 SKEMTILEGAR æskuminningar eru léttara sagt en gert! ég hef eginlega bara fundið eina og það er um mig og Lilju vinkonu frá því við vorum 5 eða 6ára! svo núna er ég að berjast við það að finna 4 til viðbótar!
   Ég er einnig að skrappa sér albúm fyrir Kela minn og það gengur bara vel! Litla kisubarnið mitt!

   Jæja, ég ætla að fara að ljúka þessu í bili! það var frestaður fundur sem ég átti að fara á þannig að ég stefni að því að reyna að taka aðeins til hjá mér! Enda veitir ekki af því svo mikið er víst!


   Svona í lokin þá vil ég þakka öllum sem hafa litið inn og skilið eftir spor! Þetta er mér mikils virði og það gefur mér styrk að vita af ykkkur þarna úti! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 13:23:00 / Alvia

Bitur út í fortíðina og æsku!!!

Var að kíkja oní kassa með gömlu dóti! í þeim fann ég meðal annars gamlar dagbækur, og gluggaði aðeins í þær! Þegar ég sá sumt þá er ég ekkert hissa á því að ég muni lítið úr æsku minni! og sumar minningar sem koma upp eða koma fram við þennan lestur væru held ég best geymdar grafnar! ég er virkilega hrædd við þær! Sit alveg í tárum núna! Finnst jú ekki að neitt barn egi að upplifa þessa hluti!

   Vildi svo innilega að ég hefði fengið hjálp á sínum tíma! Vona bara að nuna sé það ekki of seint! Eitt sem mér finnst samt skrítið er afhverju engin skildi hróp mín á hjálp??? vildu þau ekki skilja það eða voru þau ekki nægilega augljós??? Hefði ég átt að segja alla sólarsöguna??? Ef ég hefi sagt allt eins og það var á þessum tíma sem hlutir voru að gerast hefði einhver varið mig, hefði einhver staðið með mér???


uss, mér er orðið íllt í augunum vegna þrýstingnum frá tárunum! ég ætla að láta fylgja með eitt stutt stykki úr einni af dagbókunum! Kanski skiljið þið það, kanski ekki! Ég verð allavegana að lossna við þetta áður en það étur mig í sundur!!!

 

"25. Desember 1996
Þegar  ég var að óska öllum gleðilegra jóla þá faðmaði ég mömmu en tók í höndina á hinum, S kreisti fast á mér höndina þannig að ég meiddi mig. Hann sagði að þetta væri vegna þess að ég vildi ekki kissa hann. OJJJ"

 

(þetta er skrifað nákvæmlega upp úr bókinni! mig langaði til að æla égar tilfinningarnar komu yfir mig=( )

 eða þetta verða tvö atriði...

"Ég þoli S ekki !!!! Í fyrrakvöld þegar ég var búin að busta tennurnar vildi S fá að skoða en ég vildi það ekki og hljóp inn í herbergi og fór upp í rúm vegna þess að ég vildi ekki láta hann skoða á mér kjaftinn. S hélt mér þá fastri og opnaði á mér munnin og þegar ég síndi mótþróa tók S penna og tróð honum upp í mig þannig að ég meiddi mig!"

...það er oggulítið áframhald við þennan texta en ég treysti mér ekki til að setja það inn akkurat núna!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 04:06:59 / Alvia

The verry first kiss!

"It must have been love but its over now, it was all that I wanted, now Im living without."

 var að horfa á myndina Pretty woman, það er bara eitthvað við hana! kanski það að þetta sé típísk "kerlingarmynd" en kanski bara það að í myndinni rætast draumar! Allir hafa sína drauma um framtíðina hvort sem þeir viðurkenna það fyrir sér og öðrum eða ekki! Við stelpurnar erum heldur ekki einar um að dreyma! Verst er sam þegar draumurinn er það raunverulegur að það lyggur við að manni blæði þegar maður vaknar af honum!

     Fyrsti kossinn er alltaf sérstakur! Bæði fyrsti kossinn EVER og svo fyrsti kossinn með þeim sem maður elskar! ég get reyndar alveg viðurkent það að ég man ekki næstum því alla fyrstu kossana mína og flesta þeirra er mér alveg sama með!
   Einn af mínum síðustu fyrstu kossum man ég vel! Enda var hann yndislegur, hellings spenna, hellingur af hvötum en samt svo ljúfur og svo mjúkur að þetta var eins og að kyssa ský! Það fylgdu margir kossar á eftir en þennan varðveiti ég! Hluta af mér langar aldrei að toppa hann en svo er annar hluti af mér sem að hefur löngun í það að finna þann eina rétta sem gettur toppað þennan koss og eytt honum í frumeymdir!

   Sumum gæti fundist ég vera með mikla áráttu en svo er ekki málið!  Ég hef enga drauma né vonir um endurupplífgun! Þetta er æfintýri sem er liðið, endirinn var sorglegur og ekki sá sem ég átt von í byrjun en þetta var samt sem áður endirinn og það mun ekkert breitast! Ég er bara reynslunni ríkari og kanski aðeins minna fool í næsta sinn!

   Ekki er öll von úti fyrir mér þósvo að allt sé í gangi! Ég var slegin út af laginu og undirstöðunni kippt undan mér svo ég hrapaði alla leið niður í kjallara! En ég ætla ekki að grafa mig neðar í von um að þar sé eitthvað að finna! heldur vil ég klifra upp á við þósvo að það sé án öryggislína þarsem ég hef ennþá vonina og vonin gefur mér handfestu og raufar að tylla tánum svo ef ég bara held mér fast og gefst ekki upp þá mun ég komast ofar! fyrsta markmiðið er jarðhæðin!


   Reyndar hefur mér tekist að taka upp þá yðju sem ég hafði ekki snert í tæp 2 ár! En ég hef afrekað það að taka framm skrapp (scrapbooking) dótið mitt og föndra aðeins! það er mikið afrek fyrir mig þarsem ég hef ekki geta gert neitt af þessu í marga mánuði!

   Annars er verkefni morgundagssins að henda rusli sem ég var að sortera! Vaska upp og svo þrífa baðherbergið og forstofuna! ég á von á manneskju í heimsókn í næstu viku og vil þá hafa það allevagana þannig að ég geti boðið inn henn!

   Núna ætla ég að leggja mig enda klukkan orðin 4 og ég vona að mig dreymi einhverjar góðar leiðir til betra lífs og batnaðar!

      Farið vel með ykkur yndislega fólk og þið hin, tja, farið vel með ykkur líka!


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 13:46:29 / Alvia

Ég er vanþakklát og full vantrausti!

Ég er að reyna að fá mig í gang aftur með það að leggja stund á áhugamál mín og það sem ég er að stefna að akkurat núna er að byrja aftur með scrapbooking og hefur mér tekist að gera eina síðu!

Ég er að taka þátt í BOM (book of me) leik á einum lista sem ég er á og annað verkefnir fyrir febrúar mánuð það er að gera síðu um það hvað maður sé þakklátur fyrir og ég er búin aðhugsa mikið um þetta og hlít bara að vera alveg gífurlega vanþakklát en ég finn bara 3 hluti sem ég er þakklát fyrir (virkilega og innilega frá hjartarótum) en það eru mamma og Jóna systir og svo þessir örfáu einstaklingar sem hafa sannað það að þeim sé ekki sama! Samt er ég full hræðslu yfirþví að fljótlega hættir þeim að finnast ég verðugt "málefni" og fara að snúa sér að öðru/m!

En ég get gefið ykkur lista yfir hluti sem ég er EKKI þakklát fyrir!

 

Ég er EKKI þakklát fyrir...

...Líf mitt, það er ómannúðlegt að þurfa að þjást svona endalaust!
...Líkamlegt og andlegt ofbeldi sem ég hef orðið fyrir!
...kynferðislega áreitni/ofbeldi/misnotkun!
...Nauðgun og nauðgunartilraun!
...það að hafa lent í einelti!
...lélegt heilbrigðis og félagskerfi!
...það að hafa elskað en ekki verið elskuð á móti!
...Það að geta ekki sofið vel án lyfja!
...að hafa ekki tök á fjármálum mínum!
...það að geta varla sinnt heimilinu (tiltekt m.m.)!
...það að vera þunglynd!
...að hafa lítinn kraft í það að hirða sjálfa mig almennilega! (heilsa útlit)
...að keli fái ekki þá athygli sem hann ætti að fá!
...aukna hausverki og mígreni!
...það að hafa gert nánast hvað sem er fyrir (fyrrverandi) "vini" og í staðinn verða svikin af þeim, hunsuð og/eða stungin í bakið fyrir vikið!

 

Ég gæti taliðupp fleirri hluti en þetta eru bara þeir hlutir sem komu upp í fljótu bragði!

 

Svo já ég er full vanþakklætis og vantrúar!

 

En ég hef oggulitla micro von um að þetta breitist og óska þess innilega að ég muni einhverntíman geta sagt "ég er þakklát fyrir líf mitt" og meina það frá dýpstu hjartans rótum!


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 10:27:19 / Alvia

nöldur & tuð!

   Líðan mín er oggulítið skárr en hún var um daginn! en ekki mikið! Það er ansi margt sem ég þarf að fara að takast á við núna! Hlutir sem hafa skeð t.d. þegar ég var barn en hefur aldrei verið unnið með heldur hefur því bara verið ítt til hliðar án þess að sinna þeim! Ég næ ekki að komast yfir þá fyrr en ég er búin að fara í gegnum þá og vinna úr þeim þannig að ég á mér mikið verk fyrir höndum!

    Núna byrja ég á öllu upp á nýtt! Þetta er í raun og veru ný byrjun og er ég komin með nokkra einstaklinga sem munu hjálpa mér við það! í gær fékk ég niðurstöðu úr greiningunni og það kom í ljós að ég er með ADHD & hvatvísi!(vissi það náttla fyrir en það er gott að hafa það á pappírum svosem) síðan er ég með þunglyndi á alvarlegu stigi ásamt ýmsu sem fylgir því!

   Annars sit ég hérna núna og vildi að ég væri með on off takka á tilfinningum! Er rosalega sár og reið og finn mikið til EN samt ber ég sömu tilfinningar til aðillanns! Að hluta til finnst mér eins og að ég hafi ekki fengið tækifærin sem ég á skilin! Ég er ekki slæm stúlka, vil flestum vel! Ég vona svo innilega að honum gangi vel í öllu því sem hann er að ganga í gegnum núna! Og ég trúi því að hann standi sig! Hluti af mér oskar bara að það hefði ekki verið bygð upp nein von í mér að ég hefði ekki verið svo bjartsýn á þetta allt! Ég skamma sjálfa mig fyrir heimsku, brýt mig niður fyrir að hafa tekið mark á því sem sagt var! og því sem skrifað var! ég finn strauma fara í gegnum mig þegar ég hugsa um hann á sama tíma er ég svooo sár og svooo reið! Held það væri gott að láta græða í sig on off takka, geta stjórnað þessu!
   ég veit í raun ekki hvað ég get gert í þessu! ætli ég þurfi ekki bara að vinna í því að losa mig við þessar tilfinningar og minningarnar! en hvað með góðu minningarnar???? get ég haldið þeim eftir án þess að það sé of sárt? eða er sársaukinn það mikill að hann yfirgnæfir það sem gott var?

   Eitt er víst ég þarf að hætta að lifa í draumaheim! Ég hef tapað trúnni á því að ég megi vera hamingjusöm, að ég kynnist einstaklingi sem elskar mig eins og ég get elskað! Hver ætti svosem að geta elskað mig? Hvað hef ég af öðrum að bera? hvað geri ég annað en mistök og eyðilegg eitthvað sem hefði geta orðið? Ég veit að ég á það til að gera hluti í hugsunarleysi en það þýðir ekki að ég meini ekki vel! helvítis hvatvísin á það til að fara með mig bara! það er ömurlegt ef maður gerir eitthvað af góðri hugsun, vegna þess að manni er ekki sama en þá er það kanski allt öðruvís sem það kemur út!

 

   ég er hætt í bili! ég stefni að því að hafa góða helgi! hitta Górý mína og karl! En ef einhver kann listina að losa sig við sársauka(án þess að meiða sig líkamlega), plz tell me about it!

 

    p.s. vil bara minna á það að þetta blogg er fyrir mig og mínar hugsanir, semsagt ég stjórna því sjálf hvað ég skrifa hérna! þú mátt samt alveg skilja eftir komment eða spor í gestabókinni! Fínt að vita hverjir eru að gæjast inn í líf mitt!


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 12:58:08 / Alvia

I NEVER WANT TO FALL AGAIN!

   Það er ekki gott að eiga sér drauma, að eiga sér vonir! Það gefur alltaf einhverjum tækifæri til að koma og rústa þeim! Mínir eru í triljón molum, algjerlega ómögulegt að finna öll brotin þannig að ég verð aldrei heil aftur! Ég var tilbúin í að gefa allt mitt og gaf of mikið! Fékk ekki þaðsem að ég átti von á og hélt að ég myndi fá! Bréfin, samtölin þetta var bara of gott, allt of gott því raunveruleikinn varð allt allt annar! Raunveruleikinn hefur brotið mig niður í frumeindir frumeindanna! það sést ekki en ég þjáist á við þúsund manns! kraftur minn er senn á þrotum, ég næ ekki að halda mér fljótandi að eilífu!

   Ég hefði getað farið öðru visi að hlutunum ég veit það! en ég gerði það ekki, en það sem ég gerði var að góðum hug af öllu mínu hjarta! þangað til að ég fann fyrir svikunum og lygunum, þá gat ég ekki gert hlutina rökrétt lengur! Ég get ekki gefið að mér meir!

    Ég er búin, eiðilögð og ílla farin! Ég trúi ekki lengur á kraftaverk!


(Keli greyið hleipur um íbúðina með skerm þetta krútt, en lítið um hlaup reyndar, hann fer hægar yfir en venjulega! með risa stort sár á lærinu þarsem saumuð voru 9spor og svo var hann tekinn og geldur í leiðinni! en bara vika til viðbótar svo ætti hann að vera í góðum málum)

p.s. Takk Gillimann, þú ert einn af þeim sem eru mikilvægir fyrir mig :**
takk Lilja, þú ert mér líka mikilvæg! takk! :**

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 18:31:34 / Alvia

NEVER LET THEM IN!

þessi vika var full spenningi og tilhlökkunar en helgin var helvíti!

   Er búin að ákveða að hreinsa aðeins út og skoða hverjir það eru sem eiga skilið að vera kallaðir vinir minir og hverjir ekki! Hef síðustu daga séð það að sumir sem að ég héllt að ég gæti leitað til get ég engan veginn leitað til og það gerir það að verkum að ég get ekki lengur talið þá vini mína!

   annars hef ég ekki orku í að skrifa neitt núna þarsem að mér líður innilega ekki vel!

p.s. mamma mín og systir! þið eruð mykilvægustu manneskjurnar í lífi mínu fyrir utan mig sjálfa!

*farin í felur*

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 23:42:32 / Alvia

14 dagar

14 dagar búnir af árinu 2007! Hefur bara verið ágætis tími hingað til! Er ennþá jákvæð á þetta ár! lenti reyndar í því að það leið yfir mig þegar ég ætlaði í ræktina á mánudaginn en það bjargaðist! en já, ég fékk smá akstursútrás, keyrði norður á sauðarkrók og aftur til baka á mánudeginum, æðislegt að fá að keyra! ekki nema rúmir 9 tímar í akstur! bara stemming! ég virkilega elska það að keyra bíl! reyndar var of mikið af technotónlist spiluð og svolítið erfiður codriver! en ég lifði það af! enda sterk dama hérna á ferðinni! en annars lítið spennandi vika, vesen og þeitingur, og þvælast hér og þar! svo tiltekt ídag! mætti halda að það hefði verið sprautað sinnepi í rassgatið á mér kl hálf átta í morgun þarsem að ég er búin að vera á útopnu ídag! en já, nenni ekki meira blaðri! later pepps

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 21:26:56 / Alvia

Vika 1

Jæja, þá er fyrsta vika árssins liðin! Búin að vera ágætis vika svosem fyrir utan það að ég er búin að vera allt of löt! þoli ekki hvað viljinn getur verið mikill en framkvæmdarmátturinn nákvæmlega ekki neinn! Hef verið mjög dugleg að fresta hlutunum og liggja í leti!

   Jólin búin í bili líka, voru skotin burt ígær, það var sko verið að skjóta upp hérna nánast none stop frá kl 15 ígær og alveg framm á nótt! og ég efast ekki um að eitthvað verði skotið áfram næstu daga! Allavegana tók ég niður ónýtu séríuna frá því um síðustu jól og setti í poka það jólaskraut sem ég hef keypt eða fengið og fór ekki upp! Stefni að því að setja það upp um næstu jól!

   Annars byrjar nýja lífið mitt á morgun! Það er alsherjar átak! og svo einmitt smá heilsuátak líka! en ég ætla mér að létta mig og hef ég ákveðið að í þetta sinn ekki setja mér nein tímamarkmið þarsem að hingað til þá hef ég ekki höndlað það!

  Er að reyna að muna hvað ég gerði í þessari viku en það var víst ekkert merkilegt! aðalega leti, reyndar kom Lilja í bæjinn í gær og kíkti ég stutt með henni í kringluna og borðuðum við saman í hádeginu! Við vorum að pæla í því að fara í sund saman ídag en það varð því miður ekkert úr því! bara stefnum í staðin að því að gera það næst þegar hún kemur! og þarsem að hún er reglulega í bænum þá ætti það ekki að vera neitt vandamál! =)

   en jæja, ég ætla að fara að koma mér í háttin þarsem ég ætla að vera komin í sundlaugina kl 8 í fyrramálið, þarf svo að fara niður á vinnumiðlun og svo mun ég keyra norður í land fyrir stelpu sem ég þekki! svo þetta verður að öllum líkindum langur dagur!

kveð að sinni
Alvia

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2